Maukur H. Sagnússon ([info]namebeatingcure) wrote,
Vinnu vinnu vesen, en nú er þetta allt að skýrast og ætti að vera skárra það sem af er. Ég birti samt til gamans bréf sem ég fékk í gær frá ritstýrunni minni og mér finnst lýsandi:

Hæ! Ég er að skynja frekar mikinn pirring frá þér tengt nokkrum hlutum sem mig
langar aðeins að útskýra hvernig virka eða virka ekki hérna hjá okkur: 1.
Lausapennar eru ekki með áskrift að Morgunblaðinu. Ég náði að frekjast með það í
gegn, en fyrst það er að stranda eitthvað þá er það eflaust af því fyrirtækið er
gamalt og frekar fast með sínar reglur og ég þarf þá bara að fara yfir þetta aftur
með Auði, en nú er hásumar tími og hún ekki við eins og vanalega.2. Við lögðum upp
með að vera með 30 síður í blaðinu og þá 15 efnissíður frá okkur. Nú hafa
auglýsingar ekki verið að seljast eins vel og við var að búast svo efnissíðurnar eru
ekki fleiri en tólf. Ég talaði við þig um að vilja helst reyna að láta þig hafa
verkefni sem væru 4 til 5 síður á viku en eins og þú og ég höfum bæði uppgötvað er
það ekki endilega að standast. Við erum náttúrulega tvö fastapennar við blaðið, erum
mjög ánægð með þig sem blaðamann eins og þú veist, en það kemur óbærileg neikvæð
pressa frá þér nánast á degi hverjum af því þér finnst þú ekki hafa nægilega mörg
verkefni á þinni könnu. Við teljum okkur vera að láta þér í tjé verkefni, en kannsk
erum við ekki að geta nýtt þig eins og þú vildir!!! Sem mér finnst mjög slæmt því
mér finnst óbærileg sú hugsun að þér finnist við vera að svíkja þig. Nú er bara
spurning hvernig við útkljáum þetta mál. Kannski væri ekki svo vitlaust fyrir þig að
spá aðeins í því hvort þú ert tilbúinn að vinna þetta eins og þú hefur verið að gera
eða hvort þetta sé eitthvað sem þú getur ekki verið að standa í. Í svona
blaðaútgáfu, þegar magn auglýsingasíðna eru að ráða stærð blaðsins er ferlega erfitt
að lofa ákveðnu magni af síðum fyrir lausráðna penna, þá sérstaklega þegar við erum
með einn til að skrifa um tísku, einn um kvikmyndir, bloggara og s.frv. sem eiga
fasta þætti í blaðinu líka. Ég vona að þú skiljir þetta mál. En eins mikið og ég
vildi hafa fjölmörg verkefni fyrir þig þá er bara frekar erfitt að lofa því magni
sem þú vilt fá vikulega, þar sem þetta snýst fyrst og fremst um launin. Það er líka
hundleiðinlegt fyrir mig í þessari útgáfu, að hafa takmarkað fjármagn sem var ekki
endilega lagt upp með í byrjun, af því auglýsingasalan er lítil og þurfa að hringla
fram og til baka með blaðamenn blaðsins. Í þennan eina og hálfa mánuð sem eftir er
að blaðaútgáfunni nenni ég heldur ekki að vera með neikvæða pressu sífellt yfir mér.
Þetta er eitthvað sem þú þarft að gera upp við þig.
Kveðja,

---

Læra á enter-takkann, þarna.

  • Post a new comment

    Error

  • 0 comments
Create an Account
Forgot your login or password?
Facebook Twitter More login options
English • Español • Deutsch • Русский…